ORÐ FRÁ EMIL
Gleðin í leiknum.
Í sumar mun ég bjóða metnaðarfullum knattspyrnumönnum á aldrinum 13-15 ára (2009-2011) með mér í ógleymanlegt ítalskt fótboltaævintýri. Við munum dvelja og æfa við frábærar aðstæður í Veronello Resort við Gardavatn, en það er æfingasvæði þar sem lið allstaðar frá Evrópu koma saman og æfa, ekki síst á undirbúningstímabilinu.
Ég flýg út og verð með hópnum allan tímann, innan vallar sem utan og passa að allt fari rétt og vel fram. Með mér verða svo góðir ítalskir þjálfarar sem ég hef kynnst náið við störf mín hér ytra sl. 17 ár.
Til að ná árangri þarf að vera gaman og er því helsta markmið ferðarinnar að drengirnir hafi gaman og njóti þess að æfa vel og spila fótbolta í fallegu umhverfi og góðum félagsskap hvors annars og starfsliðsins.
Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemmtilegar en á sama tíma árangursríkar. Við munum fara vel yfir öll grunnatriði leiksins í jákvæðu, uppbyggjandi og öruggu ítölsku umhverfi. Ég vil að strákarnir fái áskoranir við hæfi og upplifi allar þær mögnuðu og jákvæðu tilfinningar sem fótboltinn færir okkur.
Að sjálfsögðu verður líka markmannsþjálfari með okkur sem mun kynna nýjar tæknihugmyndir og koma aðra sýn á markmannsstöðuna, en eins og þekkt er eru ítalskir markmannsþjálfarar hátt skrifaðir innan fótboltaheimsins.
Þó aðalatriði ferðarinnar sé knattspyrna og allt sem að henni snýr að þá munum við líka heimsækja Gardaland og Caneva Aquapark sem eru skemmtigarðar á svæðinu sem/og skoða fegurðina við Gardavatn.
Ég hlakka til að taka vel á móti ykkur á mínum atvinnumanna og heimaslóðum. Njótum þess að spila og æfa fótbolta, sköpum góðar minningar og skemmtum okkur saman á Ítalíu.
Innifalið í ferðum 2025
- Flug
- Gisting á Veronello Resort og æfingasvæði
- Fullt fæði
- Emil Hallfreðsson fararstjóri & þjálfari
- Þjálfarar frá Hellas Verona & scout frá Hellas Verona
- Allar rúturferðir á Ítalíu
- Æfingafatnaður/taska + þvottur alla daga
- Vatn á æfingum
- Skemmtiferðir í Gardaland og Caneva World
- Hjólaferð um Garda
- Borgaferð til Verona
- Pizzuveisla
- Grillsveisla
- Fyrirlestrar og glaðningur
(Innifalið farastjórn, flug, gisting, fullt fæði, æfingaaðstaða, þjálfun, vatn á æfingum, æfingafatnaður og þvottur, bolti, rútuferðir, Gardaland, Caneva Aquapark o.fl.)
Nánari upplýsingar: hluthersdottir@icelandsoccertravel.com og emil@olifa.com.
Upprunaleg Abler-síða ferðarinnar 2025 ↗